[15:51]
Fyrirspyrjandi (Anna Ólafsdóttir Björnsson) :
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. 4. þm. Reykn. og hæstv. menntmrh. kærlega fyrir undirtektirnar sem ég vil leyfa mér að líta á sem afdráttarlaust jákvæðar. Vissulega kom það fram í svari hæstv. menntmrh. að það er hlutverk Námsgagnastofnunar að koma hér að málum, en ég tek orð hans svo, og bið þá um að það verði leiðrétt ef það er ekki réttur skilningur, að hann hafi vísað þessu til Námsgagnastofnunar með það í huga að þar yrði gert eitthvað í þessum málum. Ég vil spyrja hæstv. menntmrh. í framhaldi af því hvort menntmrn. sé ekki jafnframt reiðubúið til þess að taka sérstakt tillit til þess í fjárveitingum til Námsgagnastofnunar því ella þarf að klípa þetta af öðru starfi þar.
Í fyrirspurn sem ég bar fram til hæstv. heilbrrh. í síðustu viku kom fram að ákveðin summa er ætluð til forvarna í áfengismálum á vegum heilbrrn. Hins vegar hefur viljað bera svo við að það væri verið að bæta sífellt fleiri málaflokkum inn í þá föstu summu og það er auðvitað ekki gott ef útgjöld á einu sviði taka frá öðrum sem jafnframt eru mjög brýn. Þess vegna finnst mér nauðsynlegt að þetta komi fram og ekki síður fyrir það að forvarnastarf, þótt það kalli á einhver fjárútlát til skemmri tíma, er tvímælalaust ein besta fjárfesting og einn mesti sparnaður sem hægt er að leggja í á vegum ríkis og sveitarfélaga. Þá á ég bæði við fjárhagsleg og ekki síður ef við lítum á önnur verðmæti sem eru mannleg verðmæti.