Stækkun atvinnu- og þjónustusvæða á Vestfjörðum

115. fundur
Þriðjudaginn 22. mars 1994, kl. 15:15:41 (5422)


[15:15]
     Matthías Bjarnason (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Ég kann illa við svona dylgjur hjá hv. þm. Það hefur engu verið haldið leyndu

í Byggðastofnun fyrir stjórnarmeðlimum, ekki nokkru. Það hefur verið fjallað ítarlega um þetta mál og í fullri samvinnu á milli manna þar. Ég skora á þennan þingmann að taka aftur svona dylgjur. En að ég sem oddviti þingmanna eigi að boða til fundar tek ég ekki að mér því við höfum fjallað um mál í þingmannahópnum þar sem menn hafa svo hlaupið út og suður á eftir þegar búið er að tala um samstöðu innan hópsins og alveg sérstaklega þessi hv. þm.