[18:27]
Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar) :
Frú forseti. Það er mikilvægt að árétta það að hér er um að ræða aðgerð í byggðamálum en ekki
sérstaka ráðstöfun í sjávarútvegsmálum. Það kemur m.a. fram í frv. að sjútvrn. tilnefnir ekki einu sinni fulltrúa í þá verkefnisstjórn sem á að fjalla um útdeilingu á þessum peningum sem er undirstrikun á því að þetta er ekki ráðstöfun í sjávarútvegsmálum heldur byggðaaðgerð vegna sérstöðu Vestfjarða sem vissulega hafa orðið fyrir áfalli vegna einhæfni í atvinnulífi og reyndar einhæfni í sjávarútvegi. En að því er varðar ráðstafanir vegna sjávarútvegsins í heild, þá hefur það komið hér mjög skýrt fram í umræðunum að þær hafa við mjög þröng skilyrði skilað umtalsverðum árangri, ekki einar og sér heldur líka vegna þess að stjórnendur og starfsfólk í fyrirtækjunum hefur verið að taka á í hagræðingu, í nýrri verðmætasköpun. Við urðum vissulega fyrir góðum búhnykk með loðnuvertíðinni á dögunum sem gaf okkur mjög aukin verðmæti í frystingu og hrognatöku.
En aðalatriðið er að þrátt fyrir verðfall og minni þorskveiðar þá eru horfur á því að greinin verði í heild rekin yfir núlli og það er sá almenni árangur sem hefur náðst af almennum efnahagslegum ráðstöfunum ríkisstjórnarinnar og viðbragða atvinnufyrirtækjanna sjálfra. Það er umtalsverður árangur í þessari atvinnugrein.