[19:02]
Ingibjörg Pálmadóttir (andsvar) :
Virðulegi forseti. Hv. þm. síðasti ræðumaður vék svolítið að því sem ég sagði áðan og spurði mig stórra spurninga, hvernig ætlaði sú sem hér stendur að tryggja það að Vestlendingar og Vestfirðingar fengju nógan þorsk til að veiða. Það er stórt spurt. Þá spyr ég hv. þm. á móti: Hvernig getur hann stutt hæstv. ríkisstjórn sem treystir sér ekki einu sinni til að endurskoða fiskveiðilöggjöfina? En á meðan við megum ekki veiða nema 160 þúsund tonn af þorski, þá erum við auðvitað í vanda. Það er ekki spurning.
Núverandi kerfi er ekki algott. En mig langar að spyrja hv. þm. á móti: Hvaða kerfi telur hann að muni tryggja landsmönnum betur, Vestlendingum, Vestfirðingum, Austfirðingum o.s.frv. að þeir fái að veiða meiri þorsk? Það er auðvitað sú spurning sem hann verður að svara sjálfur.