Stækkun atvinnu- og þjónustusvæða á Vestfjörðum

115. fundur
Þriðjudaginn 22. mars 1994, kl. 19:07:28 (5463)


[19:07]
     Kristinn H. Gunnarsson (um fundarstjórn) :
    Virðulegi forseti. Mér er í sjálfu sér ekkert að vanbúnaði að taka til máls öðru sinni, en hins vegar hafði ég beint nokkrum fyrirspurnum til hæstv. félmrh. um útfærslu á hliðarráðstöfunum með þessu frv. sem verið er að ræða og tengist því ákvæði þess sem lýtur að sameiningu sveitarfélaga. Ég hafði vænst þess að fá að heyra svör ráðherrans við þeim fyrirspurnum áður en önnur umferð hæfist hjá ræðumönnum.