Stækkun atvinnu- og þjónustusvæða á Vestfjörðum

115. fundur
Þriðjudaginn 22. mars 1994, kl. 23:26:28 (5534)


[23:26]
     Jón Helgason (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Það kemur hvergi fram í frv. að þetta sé samþykkt ríkisstjórnarinnar svo ég geti séð, en það skiptir nú ekki máli og það hefur verið upplýst. En ég vil þá ekki síður úr því að svo er, að þetta er samþykkt ríkisstjórnarinnar um að hér kunni að verða litið til fleiri átta, spyrja hvort þessi samþykkt sé þá marklaus ef alls ekki á að verja meira fjármagni í þessu skyni eða ef hún kæmi til framkvæmda, þetta áform sem kemur fram í þessari málsgrein, hvort það muni þá leiða til þess að Vestfirðingar fái minna.