[19:32]
Frsm. minni hluta félmn. (Kristinn H. Gunnarsson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Mig langar að beina tveimur spurningum til hæstv. ráðherra um leið og ég þakka honum fyrir svör sem hann gaf við fyrirspurnum mínum. Þó að ekki hafi allt í ræðunni verið að mínu skapi þá er það önnur saga.
Fyrri spurningin er þessi: Hvenær var nefndin sem á að athuga löggjöf um greiðsluaðlögun skipuð og hverjir eru í þeirri nefnd?
Síðari spurningin er þessi: Er hæstv. ráðherra reiðubúinn til þess að gefa út þá pólitísku yfirlýsingu í ljósi þess hversu ástandið hefur versnað, hversu atvinnulausum hefur fjölgað og vextir lækkað, gleymum því ekki, og almennir vextir lækkað, að rétt sé að lækka aftur vextina í Byggingarsjóði ríkisins úr 2,4% niður í eitthvað minna, jafnvel alla leið niður í 1% eins og þeir voru þar til þeir voru hækkaðir á síðasta ári? Sú aðgerð mundi skipta sköpum fyrir marga.