Flugmálaáætlun 1994--1997

118. fundur
Fimmtudaginn 24. mars 1994, kl. 14:52:35 (5647)


[14:52]
     Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég hef litlu við að bæta. Hér er um einkaflugvöll að ræða eftir þeim upplýsingum sem ég hef. Ef menn óska eftir því að Flugmálastjórn eða samgrn. hafi afskipti af slíkum flugvöllum þá er fyrst að bera málið upp með venjulegum hætti við þessi embætti.