Forseti (Valgerður Sverrisdóttir) :
Forseti hefur líka orðið var við þennan bunka og getur ekki greint frá hverjar ætlanir hæstv. ríkisstjórnar eru. Eins og hv. þm. er eflaust kunnugt mun koma fram forgangslisti þegar líður á aprílmánuð, en á þessari stundu getur forseti ekki greint frá því hvaða mál verða á þeim forgangslista.