Framleiðsla og sala á búvörum

122. fundur
Þriðjudaginn 29. mars 1994, kl. 15:43:15 (5729)

     Forseti (Valgerður Sverrisdóttir) :
    Forseta urðu á mistök hér í fundarstjórn áðan og telur rétt að það komi fram þegar hún hleypti hv. 18. þm. Reykv. að með athugasemd um fundarstjórn forseta áður en hún heimilaði hv. 3. þm. Austurl. að veita andsvar. En 56. gr. þingskapalaga hljóðar svo: ,,Forseti getur leyft þingmönnum að veita stutt andsvar við einstökum ræðum strax og þær hafa verið fluttar.`` Þannig að það er rétt að það komi hér fram hvað rétt er í þessum efnum.