Framleiðsla og sala á búvörum

122. fundur
Þriðjudaginn 29. mars 1994, kl. 16:50:12 (5740)



[16:50]
     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Varðandi þær fyrirspurnir sem til mín var beint vil ég einungis segja að eins og frv. ber með sér er þar gert ráð fyrir því að heimildir verði til þess að takmarka innflutning á landbúnaðarvörum eins og áður og það auðvitað gert vegna þess að við lítum svo á að það sé ekki vafi á að það sé heimilt.
    Í öðru lagi hefur GATT-tilboð ríkisstjórnarinnar eins og það var lagt fram verið samþykkt eins og það liggur fyrir og ekki gerðar athugasemdir við það.