Framleiðsla og sala á búvörum

122. fundur
Þriðjudaginn 29. mars 1994, kl. 16:51:02 (5741)


[16:51]
     Jón Helgason (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Hæstv. landbrh. segir að hann sé í þeirri trú eða telji að þetta frv. muni veita heimild til takmarkana eins og áður. Því trúðu menn líka fyrir jólin þegar það frv. var samþykkt. En hér liggur fyrir yfirlýsing í nefndaráliti stjórnarþingmanns að hann telji að við séum búnir að afsala okkur rétti til slíkra takmarkana og hæstv. landbrh. fékkst ekki til að andmæla því en væntanlega mun hv. formaður landbn. skýra frá meðferð nefndarinnar á málinu en ég hlýt að láta í ljós vonbrigði mín með það að hæstv. landbrh. skuli ekki sjá ástæðu til þess að mótmæla því þegar þessi staðhæfing birtist í þingskjali, sem byggt er tvímælalaust á upplýsingum frá utanrrn.