Framleiðsla og sala á búvörum

122. fundur
Þriðjudaginn 29. mars 1994, kl. 16:52:27 (5742)


[16:52]
     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég átta mig ekki alveg á röksemdafærslu hv. þm. Ég hef lýst því yfir að það er verið að fjalla um þingmál, um frv. sem takmarkar innflutning á landbúnaðarvörur vegna þess að Alþingi Íslendinga telur slíkt heimilt og er í engum vafa um það. Það er forsendan fyrir því. Ef menn á hinn bóginn telja að við höfum samið af okkur í þessum efnum og heimildir séu ekki fyrir hendi þá verða þeir hinir sömu að velta því fyrir sér.