Framleiðsla og sala á búvörum

122. fundur
Þriðjudaginn 29. mars 1994, kl. 17:16:26 (5747)


[17:16]
     Jón Helgason (andsvar) :

    Hæstv. forseti. Það var fyrst og fremst vegna orða hv. 3. þm. Austurl., sem ég skildi þannig að íslensk lög ættu ekki að vera neitt þrengri en erlendir samningar, sem ég vakti athygli á þessu en ef aðrir ráðherrar beita því með sama hætti þá leysir það að sjálfsögðu vandann. En málið er þá ekki á forræði hæstv. landbrh.