[13:42]
Páll Pétursson :
Frú forseti. Ég beini máli mínu til hæstv. forsrh. Ráðamenn okkar gera nú tíðreist í austurveg og er skemmst að minnast frækilegrar heimsóknar hæstv. forsrh. til Japans. Nú er hæstv. utanrrh. á ferð í Kína eða var á ferð í Kína og samkvæmt fregnum sjónvarpsins tilkynnti hann í Kínaförinni að Ísland hefði ákveðið að opna sendiráð í Kína. Þessi fregn kom nokkuð flatt upp á mig því hæstv. utanrrh. greindi frá ferðaáætlun sinni og umræðuefnum á fundi utanrmn.
Ég vil spyrja hæstv. forsrh.: Hvenær tók ríkisstjórn Íslands ákvörðun um opnun þessa sendiráðs í Kína?
Í öðru lagi. Hvernig hefur ríkisstjórnin hugsað sér að fjármagna þessa starfsemi?