[14:15]
Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) :
Frú forseti. Eins og hv. fyrirspyrjanda er kunnugt, þá liggja fyrir hv. sjútvn. frumvörp um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða og fleiri mál sem þeim eru tengd. Hitt er rétt að í dymbilvikunni var lagt fram frv. af 11 stjórnarþingmönnum sem höfðu bundist samtökum við hv. fyrirspyrjanda og nokkra aðra stjórnarandstöðuþingmenn þar sem lagt er til að gjörbylta núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi. Það er auðvitað ljóst að eftir að svo margir þingmenn stjórnarflokkanna hafa bundist samtökum við þingmenn í stjórnarandstöðunni um að gjörbreyta fiskveiðistjórnunarkerfinu þá hefur verið opnaður sá möguleiki að stjórnarandstaðan geti með þessum hópi stjórnarþingmanna ráðið niðurstöðu þessara mála og þarf svo sem ekki
að hafa um það mörg orð. Það eru staðreyndir sem við blasa eftir að síkt frv. hefur verið lagt fram.
Þessi mál eru nú til meðferðar í hv. sjútvn. og ég hygg að við getum ekki gert annað en séð til hvernig hv. þingnefnd afgreiðir þessi mál og hvernig atkvæðagreiðslur síðan falla hér í þinginu nú á næstu vikum. En það er auðvitað mjög brýnt að Alþingi sjálft taki um þetta ákvörðun og greidd verði atkvæði um þá meginstefnu sem fylgja ber.