[14:41]
Egill Jónsson :
Virðulegi forseti. Í frhnál. 1. minni hluta kemur fram að landbn. leitaði eftir áliti sérfræðinga á þeirri tillögu sem hér liggur fyrir til afgreiðslu. Niðurstaðan varð þessi:
1. Texti frv. eins og hann nú er orðinn er skýr. Þess vegna á ekki að þurfa að leita frekari skýringa í málsskjölum og umræðum á Alþingi þótt ágreiningur kunni að koma upp um framkvæmd þessara laga.
2. Að nál. 1. og 2. minni hluta við 2. umr. málsins stangist einungis á í einu atriði að því er varðar brtt. En þess er þá jafnframt getið að skýringar í nál. 1. minni hluta séu efnislega í samræmi við skýran texta tillagnanna.
Loks er því hafnað að unnt sé að vísa til 3. gr. laga um Evrópska efnahagssvæðið sem fordæmis um flutning þessarar tillögu. Tillagan er því bæði óvenjuleg og óþörf. (Forseti hringir.)
Spurningar um þessa tillögu voru bornar fram á fundi landbn. af þingmönnum sem eru meðflm. hv. 2. þm. Vestf. að þessari tillögu. Þess vegna hlýtur að vekja eftirtekt að þrátt fyrir þá umsögn að þessi tillaga sé nánast óþingleg þá á hún samt að koma hér til atkvæða. (Forseti hringir.) Skýringin kann að vera sú sem fram kom í máli tveggja þingmanna Framsfl. í Suðurl. við 3. umr. málsins að með því að fella þessa brtt. væri verið að staðfesta skýringar og málflutning 2. minni hluta. (Forseti hringir.) Sé þetta afstaða Framsfl. við afgreiðslu þessa máls á við um þann flokk hinn forni málsháttur: Betra er illt en ekkert að aðhafast. Ég mótmæli þessum málflutningi og segi nei, herra forseti. ( Gripið fram í: Virðulegi forseti.)