Lára Margrét Ragnarsdóttir :
Hæstv. forseti. Sem 1. flm. þessa frv. vil ég lýsa stuðningi mínum við þær breytingar sem orðið hafa á frv. í meðförum heilbr.- og trn. auk þess sem ég tek undir nál.
Stækkun á stjórn slysavarnaráðs og tilmæli til dómsmrh. um skipan í ráðið af þess hálfu á að tryggja að allir helstu aðilar sem að slysaskráningu og slysavörnum standa muni hafa áhrif á störf þess en áfram er auðvitað gert ráð fyrir að náið samráð verði haft við alla aðila sem að skráningu slysa og slysavarna standa.
Ég vil fá að þakka hv. samflutningsmönnum frv. stuðninginn og þeim hv. nefndarmönnum í heilbr.- og trn. sem um frv. fjölluðu fyrir jákvæða og skilvirka umfjöllun og vil að lokum vísa til umsagnar eins umsagnaraðila um frv., Brynjólfs Mogensens, þar sem segir: ,,Það yrði að mati undirritaðs mikið fagnaðarefni ef Alþingi Íslendinga gæfi þjóðinni frumvarpið í gjöf á 50. lýðveldisárinu.``
Slysavarnaráð
123. fundur
Miðvikudaginn 06. apríl 1994, kl. 18:04:18 (5855)
[18:04]