[18:19]
Frsm. utanrmn. (Björn Bjarnason) (andsvar) :
Frú forseti. Ég vil aðeins í tilefni af þessum orðum láta þess getið að að sjálfsögðu hefði nefndin getað falið starfsmanni sínum að vinna þetta starf. Og mér finnst nú ástæðulaust að draga í efa að á vegum nefndarinnar starfi fólk sem getur sinnt slíkum athugunum ef um það er beðið af hálfu nefndarinnar. Í þessu tilviki var beðið um það að kalla til fulltrúa frá Stéttarsambandi bænda og þeir komu, ekki formaðurinn ef ég man rétt sem rannsakaði þetta, heldur sérfróðir menn sem eru algerlega sérfræðingar á þessu sviði og eru best að sér fyrir utan kannski starfsmenn landbrn., sem einnig var rætt við, sem eru best að sér um þennan þátt málsins. Þannig að mér finnst að það hafi verið mjög rökrétt hjá nefndinni að kalla þessa menn til ráðuneytis og mælast til þess við þá að þeir segðu nefndinni álit sitt á málinu og það leiddi síðan af því að þetta misræmi kom fram sem er eins og hv. 1. þm. Norðurl. v. sagði varðar meira form heldur en efni því efnisþættirnir voru upplýstir. Hafi hv. 14. þm. Reykv. verið upphafsmaðurinn að öllum þessum athugunum á vegum utanrmn. þá er ástæða til að færa henni sérstakar þakkir. Mér var það ekki ljóst fyrr en það kom hér fram í umræðunum. En ég tel að það hafi allt verið upplýst í málinu. Þannig þarf auðvitað að vinna að öllum málum að allir þræðir þeirra séu skoðaðir og það hefur verið gert með þessum hætti. En ég vil ítreka að ég tel að á vegum utanrmn. sé starfslið sem nefndin getur að sjálfsögðu treyst til að rannsaka mál fyrir sig ef hún kýs að hafa mál með þeim hætti.