Fríverslunarsamningur milli Fríverslunarsamtaka Evrópu og Búlgaríu

123. fundur
Miðvikudaginn 06. apríl 1994, kl. 18:21:13 (5862)


[18:21]
     Guðrún Helgadóttir (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Ég ætla aðeins að segja við hv. formann utanrmn., frú forseti, að ég er ekki að halda því fram að ekki sé til starfsfólk hér í þinginu sem réði við verk eins og þessi. Það fólk hefur bara ekki tíma. Það er allt of fátt og á að sinna öllu mögulegu öðru. Ég held að það þyrfti að styrkja mjög starfsfólk utanrmn. sjálfrar. Ég held að mikill tími þess fólks sem hér á að sinna erlendum samskiptum fari í allt annað en mál sem varða þennan mikla bálk varðandi EES. Það er ekki af því að getuna vanti, ég held einfaldlega að fólkið hafi ekki tíma.