Lyfjaverslun ríkisins

124. fundur
Fimmtudaginn 07. apríl 1994, kl. 17:24:29 (5959)

     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Forseti undrast allmjög þessi orð hv. 6. þm. Vestf. vegna þess að hv. þm. óskaði eftir að fá að víkja úr húsi til að sækja gögn áður en hún mælti fyrir 6. dagskrármálinu og bað forseta lengstra orða að setja það mál ekki af stað fyrr en hún kæmi aftur. Á meðan hv. 6. þm. Vestf. var fjarverandi talaði hæstv. félmrh. fyrir einu máli og þar sem þingmaðurinn var þá ekki komin hófst umræða um þetta mál. Forseti telur ekki á nokkurn hátt að brotið hafi verið á hv. þm. og harmar það ef hún upplifir það þannig.