Lyfjaverslun ríkisins

124. fundur
Fimmtudaginn 07. apríl 1994, kl. 17:25:24 (5960)


[17:25]
     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (um fundarstjórn) :
    Virðulegi forseti. Það er alveg rétt að ég bað um að tekið yrði fyrir annað mál á meðan ég nálgaðist þessi gögn en ég held að það hafi ekki verið yfir tvær mínútur sem í það fóru. Ég þurfti ekki nema rétt út fyrir dyrnar til þess að ná þeim gögnum og forseti hafði lýst því yfir að á meðan yrði tekið fyrir 14. mál. Ég rengi það ekki að þetta hafi haft þann gang sem hæstv. forseti segir en þar sem hér eru mjög fáir, eins og ég sagði, og vantar svo að segja flestalla nefndarmenn úr efh.- og viðskn. þá fer ég þess á leit að umræðunni verði frestað.