Lyfjaverslun ríkisins

124. fundur
Fimmtudaginn 07. apríl 1994, kl. 17:32:25 (5966)


[17:32]
     Kristín Einarsdóttir (andsvar) :

    Frú forseti. Ég mótmæli slíkum ásökunum og fullyrðingum. Kristín Ástgeirsdóttir er fullfær um að taka sína eigin afstöðu og það getur hv. þm. meðal annars séð á þeirri afstöðu sem hún tók í þessu máli sem hann minntist á um virðisaukaskatt á matvælum. Kristín lætur ekki snúa upp á hendurnar á sér og ég mótmæli því og mér þykir slæmt að hún skuli ekki geta verið hér til að mótmæla þessum rakalausu --- ég veit ekki hvort ég á að kalla þetta fullyrðingum eða vitleysu sem kemur frá hv. þm. Vilhjálmi Egilssyni, að láta sér detta í hug slíkar fullyrðingar. Kristín á það ekki skilið frá þessum þingmanni, ég trúi því ekki.