Húsaleigubætur

125. fundur
Föstudaginn 08. apríl 1994, kl. 12:18:25 (5996)


[12:18]
     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það er vissulega svo að það er ekki búið að semja við hvert einasta sveitarfélag um hvort það taki upp þetta húsaleigubótakerfi. En þetta varð niðurstaðan í viðræðum félmrn. við forustumenn Sambands ísl. sveitarfélaga, að þeir lögðu á það mikla áherslu að ekki væri verið að skylda sveitarfélögin með þessum hætti heldur væri þetta sjálfsákvörðunarréttur hvers og eins sveitarfélags hvort það tæki þátt í þessu kerfi. Ég sagði það áðan að ég hefði frekar viljað hafa þetta almennari rétt. En á þetta var lögð áhersla af forustumönnum Sambands ísl. sveitarfélaga og á það var fallist og það er niðurstaðan sem kemur fram í þessu frv.