Réttindi eftirlitsmanna vegna samnings um herafla í Evrópu

125. fundur
Föstudaginn 08. apríl 1994, kl. 12:49:03 (6008)


[12:49]
     Viðskiptaráðherra (Sighvatur Björgvinsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að gera þetta að neinu ágreiningsmáli en ítreka það að ég mælist til þess við forsetadæmið að hæstv. forseti skoði þetta og ítreka það að ég er reiðubúinn til þess að una niðurstöðu hæstv. forseta um það sem forseti telur réttast vera í þessu efni.