Réttindi eftirlitsmanna vegna samnings um herafla í Evrópu

125. fundur
Föstudaginn 08. apríl 1994, kl. 12:52:16 (6012)


[12:52]
     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Nú er ég ekki jafnþingreynd og hæstv. starfandi utanrrh. þannig að vel má vera

að þetta séu réttar ábendingar hjá honum. En mér sýnist að þetta sé raunverulega framhald af þeim samningi sem gerður var um hefðbundinn herafla. Og hér er verið að ræða um eftirlitsmenn og flutningsáhafnir sem starfi á grundvelli þessa samnings. Ég veit ekki betur en að það sem snertir sendiráð og sendiherra og flest þau mál séu einmitt mál sem vísað er til utanrmn. En ég get að sjálfsögðu fallist á úrskurð forseta hvað þetta varðar hér á eftir.