[12:55]
Páll Pétursson (andsvar) :
Frú forseti. Mér fannst nú athugasemd hæstv. viðskrh. nokkuð langsótt. Ég geri ekki ráð fyrir því að utanrmn. færi neitt að sælast eftir yfirráðum yfir því. Sendiráðin heyra hins vegar undir utanrmn., tvímælalaust, en ekki allshn. Ég tel hins vegar að framkvæmd kosninga yfirleitt heyri til allshn.