Varamaður tekur þingsæti

126. fundur
Mánudaginn 11. apríl 1994, kl. 15:04:30 (6085)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Borist hefur eftirfarandi bréf, dags. 8. apríl 1994:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþm. Alþb. í Norðurl. v., Sigurður Hlöðvesson tæknifræðingur, Siglufirði, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.
Ragnar Arnalds, 3. þm. Norðurl. v.``