[16:46]
Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson) :
Herra forseti. Ljóst er að þau tilvik sem hér um ræðir verða ekki tæmandi talin og auðvitað geta lög tekið breytingum þar sem kveðið er á um að einstökum opinberum stofnunum sé lögum samkvæmt falið að gefa út reglur. Um það er því ekki hægt að gefa neina tæmandi lýsingu. En eins og fram kom í framsöguræðu var tilefni þessa erindi sem dómsmrn. barst frá viðskrn. vegna ákvæða í seðlabankalögum sem kveða á um að Seðlabankanum er ætlað að gefa út margs konar reglur og þá kemur til álita hvernig eðlilegast er að tryggja birtingu þannig að hún fari fram með sambærilegum hætti og þegar um er að ræða reglugerðir eða aðrar formlegar auglýsingar stjórnvalda. Birting í Stjórnartíðindum tryggir að menn geta á einum tilteknum stað gengið að þeim ákvörðunum sem hér um ræðir og er mikið réttaröryggi í því fólgið.
Hitt er svo annað mál og ég veit að við þurfum að eyða mörgum orðum um það að Stjórnartíðindi hafa ekki eins almenna útbreiðslu og dagblöð og aðrir fjölmiðlar. Það hefur hins vegar ekki þótt ástæða til að hverfa frá þessari formbundnu birtingu laga og reglugerða og annarra stjórnvaldsákvarðana, enda eru mjög miklir hagsmunir við það bundnir að birting þeirra sé með ákveðnum hætti og að allur almenningur eigi aðgang að þeim á tilteknum stað. Í þessu tilviki efa ég ekki að hér er um að ræða aukið hagræði að því er þetta varðar en tilefni þessarar lagabreytingar er þetta sem ég hef hér frá greint og það þótti eðlilegt að tryggja það að þessar ákvarðanir yrðu birtar með sambærilegum hætti og um reglugerðarákvarðanir ráðuneyta væri að ræða.