Leikskólar

129. fundur
Þriðjudaginn 12. apríl 1994, kl. 15:42:06 (6160)


[15:42]
     Guðrún J. Halldórsdóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það er aðeins vegna orða minna um kristilegt siðgæði sem mig langar að útskýra hvað ég átti við. Ég átti aðeins við að það gæti verið að það yrðu hópar í samfélaginu sem alls ekki væru kristinnar trúar en rækju leikskóla og þá myndi þetta stangast á. Það gæti auðvitað verið jafngott siðgæði sem þeir væru að boða okkur.