Atvinnu- og búseturéttur launafólks innan EES

130. fundur
Miðvikudaginn 13. apríl 1994, kl. 13:51:01 (6210)



[13:51]
     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Varðandi þá athugasemd sem fram kom hjá hv. þm. þá er það í skoðun í ráðuneytinu varðandi þennan kostnað og verður þá sent þeirri nefnd sem fær þetta til umsagnar en ég geri ekki ráð fyrir því að þessu þurfi að fylgja mikill kostnaður.