[16:17]
Jóhannes Geir Sigurgeirsson :
Virðulegur forseti. Nú vill svo til að ég er einn af þeim þrem sem er á mælendaskrá í því máli sem á að taka fyrir kl. 6 um Lyfjaverslun ríkisins. Það stendur einnig þannig á að ég var sá fulltrúi Framsfl. í efh.- og viðskn. sem fylgdist með þessari umræðu í síðustu viku og kæmi þá í minn hlut að fylgja því máli eftir.
Nú vill þannig til að ég var í þinginu til rúmlega þrjú, fór þá út á mína skrifstofu og skaust síðan í banka, svo að maður geri alveg grein fyrir sínum ferðum og hvar maður hefur verið, ( SJS: Var það Búnaðarbankinn?) það var Búnaðarbankinn reyndar, frá því að þessi fundur var og frétti ekki af þessu samkomulagi fyrr en ég kom í húsið kl. 4.
Nú vill einnig þannig til að laust fyrir kl. 3 ráðstafaði ég mínum tíma eftir þingflokksfund með tilliti til þeirrar dagskrár sem ég hélt þá að yrði hér í kvöld. Það er út af fyrir sig þá ekkert við því að segja ef á að knýja það fram að þessi umræða fari fram án þess að menn geti gert nokkrar ráðstafanir til að taka þátt henni. Ég geri mér fulla grein fyrir starfsskyldu þingmanna. En ég bendi á það að við þingmenn erum að sinna ýmsu öðru heldur en akkúrat því sem er að gerast í þingsalnum og við reynum að skipuleggja okkar tíma eftir því hvað er á dagskrá í það og það skiptið. Ég verð eiginlega að biðja hv. 8. þm. Reykv., Geir Haarde, að virða þessar aðstæður. Ég vil einnig biðja hv. þm. að skoða nú aðeins hvaða mál er hér á dagskrá og að það sé kannski ekkert verra miðað við forsögu þess máls og í hvaða horf það er komið núna að sýna eilitla tillitssemi varðandi það hvernig framhald umræðunnar verður. Ég get ekki séð að himinn og jörð farist þó svo það verði staðið við þá áætluðu dagskrá að þetta mál verði hér á dagskrá á morgun.
Virðulegur forseti. Ég verð að biðjast afsökunar á því ef mér varð það á hér áðan að tala sem svo að það væri formaður þingflokks Sjálfstfl. sem stýrði fundarhaldinu. Að sjálfsögðu er það ekki svo og ég hlýt að beina því til virðulegs forseta að þessi ákvörðun verði endurskoðuð.