[22:01]
Kristín Einarsdóttir (andsvar) :
Herra forseti. Það er ekki sanngjarnt af minni hálfu að beina fyrirspurnum til hv. 6. þm. Reykv. þar sem ég er að svara andsvari þannig að hún hefur ekki tækifæri til að koma hér aftur í andsvari heldur verður hún að halda ræðu. En það kom einmitt fram í hennar andsvari núna að enginn setti sig á móti þessari breytingu. En rökin fyrir breytingunni sjálfri hafa ekki verið önnur en að efla ráðuneytið á einhvern óljósan hátt. Það er í mínum huga alls ekki nægjanlegt til að gera þessa breytingu því eins og ég er búin að segja áður þá ætti að líta á mengunarvarnasviðið, heilbrigðiseftirlitið og matvælaeftirlitið í heild og finna aðra lausn á þessu máli en vera ekki að klúðra því eins og þetta frv. gerir ráð fyrir.