Lyfjaverslun ríkisins

132. fundur
Fimmtudaginn 14. apríl 1994, kl. 12:10:11 (6332)


[12:10]
     Jón Kristjánsson (um fundarstjórn) :
    Virðulegi forseti. Það er ein fyrirspurn um þingstörf dagsins. Ég vil spyrjast fyrir um það hvenær sé ætlunin að gera hlé hér á þingstörfum.
    ( Forseti (SalÞ) : Forseti getur svarað því strax að það verður gert hlé kl. hálfeitt til kl. þrjú.)
    Ég þakka forseta fyrir upplýsingarnar því það vill svo til að í matartímanum eða kl. hálfeitt hefur félmn. boðað til fundar og við munum að sjálfsögðu mæta þar til þess að greiða fyrir þingstörfum. Ég hef þá fengið þær upplýsingar sem ég bað um.