[15:46]
Ólafur Ragnar Grímsson (um fundarstjórn) :
Virðulegi forseti. Út af orðum fjmrh. fyrir augnabliki síðan tel ég rétt að vekja athygli forseta á því að í hádegisfréttum kom það fram að Ríkisendurskoðun hefði lokið skýrslu um söluna á Síldarverksmiðjum ríkisins. Nú er stjórn Ríkisendurskoðunar skipuð af forsetum Alþingis, forsætisnefnd. Jafnframt var sagt í fréttinni að Ríkisendurskoðun hefði tekið ákvörðun um það að birta ekki þessa skýrslu að sinni vegna
þess að hún gæti haft áhrif á niðurstöðu dómsmáls. Það er vægast sagt sérkennileg og mjög hæpin yfirlýsing. Ríkisendurskoðun er ekki hluti af dómsvaldinu. Hún heyrir undir Alþingi og starfar á ábyrgð forseta Alþingis.
Ég vil þess vegna mælast til þess við forseta sem nú starfar að forsætisnefnd beiti sér þegar í stað fyrir því að Ríkisendurskoðun birti þessa skýrslu. Það er satt að segja stórhættulegt fordæmi að Ríkisendurskoðun fari að leyna þing og þjóð niðurstöðum sínum vegna þess að einstaklingar hafi kosið að höfða mál.
Fyrst þetta hefur komið til umræðu hér og gerði það núna fyrir nokkrum mínútum síðan, þá taldi ég óhjákvæmilegt að kveðja mér hljóðs undir þessum dagskrárlið, um fundarstjórn forseta, og biðja forseta að taka þetta mál til athugunar. Ef niðurstaða verður sú að forsetar telja sér ekki kleift að taka ákvörðun um að þessi skýrsla verði birt þá getur orðið óhjákvæmilegt hér mjög fljótlega að taka það mál alveg sérstaklega til umræðu og Alþingi taki sjálfstæða ákvörðun um það á allra næstu dögum hvort skýrslan er birt eða ekki. Það er ekki hægt að hafa leyniskýrslu frá Ríkisendurskoðun um mál sem hún er búin að ljúka.