Lyfjaverslun ríkisins

132. fundur
Fimmtudaginn 14. apríl 1994, kl. 17:40:10 (6351)

     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Forseti ítrekar að hann getur varla leyft frekari umræður af þessu tagi. Þetta er öldungis óviðkomandi frv. til laga um Lyfjaverslun ríkisins og forseti vill biðja þingmenn að reyna að halda sig við umræðuefnið.
    Hv. 9. þm. Reykv. svarar andsvari öðru sinni og væntir forseti að hann haldi sig við það efni sem hér er til umræðu.