[10:57]
Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) :
Virðulegi forseti. Við síðustu atkvæðagreiðslu sem hér fór fram í þessu máli var samþykkt sú regla sem kemur fram í fyrri málsl. 3. gr. þar sem segir að fastráðnir starfsmenn Lyfjaverslunar ríkisins skuli hafa rétt til að starfa hjá hinu nýja félagi. ( SJS: Þó það nú væri.) Í þessum lið sem hér er verið að greiða atkvæði um er hins vegar verið að aftengja 14. gr. laga nr. 38/1954. Ég tel að það sé að sjálfsögðu óeðlilegt að það starfsfólk sem vinnur sömu störf eftir breytinguna hjá nánast sömu aðilum þótt um formbreytingu sé að ræða hafi tvöföld laun, en um það fjallar þessi grein. Viðræður á milli aðila, ríkisins og BSRB, ganga ágætlega og fjalla um réttindamálin en eiga ekki að þurfa að tefja það mál sem hér er til umræðu. Þess vegna styð ég að sjálfsögðu frumvarpsgreinina eins og hún liggur fyrir.