Málefni sumarhúsaeigenda

134. fundur
Mánudaginn 18. apríl 1994, kl. 15:39:55 (6428)


[15:39]
     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) :
    Virðulegi forseti. Út af síðustu orðum fyrirspyrjanda þá er það rétt að ég tel að það þurfi annars vegar að herða á skyldum sveitarfélaga til að veita sumarhúsaeigendum þjónustu og hins vegar líka að gera kröfu til sumarhúsaeigenda sjálfra um ákveðið samstarf og skyldu þeirra sjálfra á milli sem ekki hefur gengið sem skyldi.