Evrópska efnahagssvæðið

137. fundur
Þriðjudaginn 19. apríl 1994, kl. 16:44:11 (6474)


[16:44]
     Frsm. utanrmn. (Geir H. Haarde) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir samhljóða nál. hv. utanrmn. um það mál sem hér er til umræðu.
    Nefndin hefur fjallað um þetta frv. og leggur til að það verði samþykkt. Hins vegar kom í ljós við athugun nefndarinnar að tvær fyrstu greinar frv. höfðu víxlast og þar af leiðandi er tilvísun í 3. gr. frv. röng. Nefndin leggur til að þetta verði leiðrétt og frv. verði samþykkt með þeirri breytingu að 1. gr. verði

2. gr. og 2. gr. verði 1. gr. og síðan er afleidd breyting af þessari tillögu.
    Undir þetta nál. rita, virðulegur forseti, allir nefndarmenn í hv. utanrmn.