Vegalög

138. fundur
Miðvikudaginn 20. apríl 1994, kl. 13:43:50 (6494)


[13:43]
     Hjörleifur Guttormsson :
    Virðulegur forseti. Við 2. umr. gerði ég athugasemdir við frágang 9. gr. sérstaklega, en það tengist raunar einnig 10. gr. frv. að því er snertir almenna vegi og einkavegi. Mér er ekki ljóst hvort samgn. hefur fjallað um þessar athugasemdir en hefði talið það eðlilegt. Tækifæri gefst þá til þess við 3. umr. málsins og ég vænti þess að það verði en sit hjá við atkvæðagreiðslu um þessar greinar nú.