Fullgilding ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar um bókun 47

138. fundur
Miðvikudaginn 20. apríl 1994, kl. 14:38:48 (6502)

[14:38]
     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (um fundarstjórn) :
    Virðulegi forseti. Þegar verið var að ræða um það hversu langan tíma þyrfti til þess að tala um þetta mál, þá var samið um ótakmarkaða umræðu. Það var fyrst rætt um að tvöfalda tímann, en niðurstaðan varð sú að það yrði ótakmörkuð umræða. Mér þykir mjög leitt ef hæstv. forseti sem nú er í forsetastól hefur ekki fengið þessi boð og ég fer þess vinsamlegast á leit við hann að hann geri hlé á fundinum og athugi þetta mál sem ég er að benda á.