Fullgilding ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar um bókun 47

138. fundur
Miðvikudaginn 20. apríl 1994, kl. 15:42:32 (6510)


[15:42]
     Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson) (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Að því er varðar spurninguna um viðskiptahindranir gagnvart innflutningi á bifreiðum frá Bandaríkjunum þá endurtek ég einungis eða vísa til þess sem ég hef áður sagt. Í þessum tilskipunum felst ekki slík viðskiptahindrun í reynd. Og ef hv. þm. trúir mér ekki og vitnar til upplýsinga í hv. utanrmn., þá bið ég hv. þm. að kynna sér ræðu formanns utanrmn. sem sjálfur hafði um það orð í ræðu sinni við fyrri umræður og nefndi til sögunnar eitt tilvik eða svo.