Breyting á reglugerð um Atvinnuleysistryggingasjóð

141. fundur
Þriðjudaginn 26. apríl 1994, kl. 13:40:21 (6581)


[13:40]
     Finnur Ingólfsson :
    Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. 9. þm. Reykv. fyrir að hreyfa þessu máli hér. Nú liggur fyrir þinginu frv. til laga um breytingu á atvinnuleysistryggingum, flutt af okkur þremur þingmönnum Framsfl. sem gerir ráð fyrir því að réttur vörubílstjóra og trillusjómanna sé tryggður. Og af því að það kemur fram hjá hæstv. félmrh. að þessi reglugerðardrög séu tilbúin í félmrn. þá vildi ég gjarnan fá það upplýst með hvaða hætti gert er ráð fyrir að réttur þessara hópa, þ.e. trillusjómanna og vörubifreiðastjóra, verði tryggður.