[13:46]
Jón Helgason :
Hæstv. forseti. Ég vildi aðeins minna á það að í þeim umræðum sem hér var vitnað til áðan var einnig rætt um rétt bænda til atvinnuleysisbóta en þeir hafa greitt atvinnuleysistryggingagjald í nokkur ár. En reglugerð sú sem gefin var út í haust er það þröng að það kom fram í svari hæstv. ráðherra við fyrirspurn um það hér í vetur að aðeins fimm bændur hafi öðlast þennan rétt. Það mun vera heimild í lögunum að hafa þessi ákvæði rýmri þannig að þau nýtist fleirum, sérstaklega vegna þess mikla samdráttar sem nú er í þessari atvinnugrein og hæstv. ráðherra tók sérstaklega undir það að margar konur í sveit mundu hafa misst sína atvinnu vegna þessa samdráttar.
Ég vil því vonast til þess að eftir því sé munað í þessari reglugerð og úr því bætt með henni og það sem fyrst.