Útflutningur hrossa

142. fundur
Miðvikudaginn 27. apríl 1994, kl. 14:55:42 (6664)


[14:55]
     Árni M. Mathiesen (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Guðna Ágústssyni hlýleg orð í minn garð, en þar sem hann

nefndi störf mín sem dýralæknis í þingflokki sjálfstæðismanna, þá verð ég nú að upplýsa hann um það að mínir bestu viðskiptavinir hér á þingi, ef viðskiptavinir eru rétta orðið til þess að nota í þessu sambandi, eru í þingflokki framsóknarmanna og þingflokki Alþb.