Útflutningur hrossa

142. fundur
Miðvikudaginn 27. apríl 1994, kl. 14:56:14 (6665)


[14:56]
     Guðni Ágústsson (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. þessi orð. Svo er oft með unga menn að það er eitthvert lögmál að þeir leita þangað sem þeir sækja þekkingu og ég fagna því sérstaklega að þessi ágæti þingmaður Reyknesinga lýsir því yfir úr ræðustól Alþingis að hann hafi tengst meiri tryggðaböndum við framsóknarmenn og alþýðubandalagsmenn á þessari löggjafarsamkomu en margklofinn og illa leikinn Sjálfstfl.