Samstarfsnefnd sjómanna og útvegsmanna

143. fundur
Fimmtudaginn 28. apríl 1994, kl. 12:14:23 (6706)

     Forseti (Valgerður Sverrisdóttir) :
    Forseti vill biðja hv. þm. afsökunar á þessu. Forseti viðurkennir að það hefði verið eðlilegra að gefa hv. 9. þm. Reykn. orðið þó svo hún hafi beðið um orðið á eftir hv. 6. þm. Norðurl. e. en við þessu verður því miður ekki gert héðan af og forseti endurtekur það að forseta þykir þetta leitt. En það er rétt eins og kom fram í máli hv. 9. þm. Reykn. að þetta er vinnuregla hér þó svo að beðið geti verið um orðið í annarri röð.