[12:33]
Anna Ólafsdóttir Björnsson (um fundarstjórn) :
Virðulegi forseti. Nú er komið að fundartíma nefnda og í mínu tilviki á ég að vera á tveimur nefndarfundum núna kl. hálfeitt. Hér höfum við heyrt mjög ítarlega rædd sjónarmið framsóknarmanna og rætt um þau og lítillega frá fulltrúum tveggja annarra flokka. Ég held að það hefði auðgað þessa umræðu ef fram hefðu komið fleiri sjónarmið. T.d. vil ég vekja athygli á því að Kvennalistinn hefur alltaf haft mjög sérstaka stefnu í sjávarútvegsmálum og það hefði e.t.v. getað gert þessa umræðu dálítið minna einsleita en hún var ef það hefði verið hægt að hleypa þeim sjónarmiðum að. En það var ekki val forseta að gera það og hún hefur gefið sínar skýringar á því og ég virði það. En ég vil hins vegar spyrja hæstv. forseta hvenær verði framhald á þessum umræðum því hér voru gefin ákveðin fyrirheit um að fólk hefði möguleika á því að vinna sitt verk varðandi þau fjögur frv., sem á tímabili leit út fyrir að yrðu fimm um stjórn fiskveiða, sem er meiningin að ræða. Ég vil fá að vita tímaáætlanir og hvort það er mögulegt að svara því hlutverki sem okkur sem störfum í eða í jaðri sjútvn. er ætlað að koma af okkur. Ég vil fá að vita það frá forseta núna hver vinnuáætlunin er og hvort það er mögulegt að fylgja henni.