Tekjuskattur og eignarskattur

144. fundur
Fimmtudaginn 28. apríl 1994, kl. 16:41:39 (6739)


[16:41]
     Tómas Ingi Olrich :
    Virðulegi forseti. Hér er á ferðinni mál sem var flutt ekki aðeins á þessu þingi heldur á þinginu á undan og er raunar efnislega mjög samhljóða frv. sem hv. þm. Valgerður Sverrisdóttir hafði flutt á þinginu þar á undan. Ég er fyllilega sáttur við vinnuna sem hefur farið í þetta hjá hv. efh.- og viðskn. og tel að þær breytingar sem eru gerðar á frv. séu eðlilegar og sjálfsagðar og vil hér koma á framfæri þakklæti við nefndina fyrir ágæt vinnubrögð.