[18:05]
Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
Virðulegur forseti. Með því að knýja þessi mál fram óbreytt eftir, eins og hæstv. ráðherra sagði, að augu manna væru e.t.v. að opnast fyrir öðrum sjónarmiðum í þessu máli --- með því að knýja þessi mál fram óbreytt er hæstv. ríkisstjórn að axla ábyrgð á því, eins og ég sagði hér í mínu fyrra andsvari, ósamkomulagi sem er í uppsiglingu á milli þessara aðila. Ef það er svo, eins og hæstv. ráðherra segir, að það séu uppi breytt sjónarmið þá er það eina sem nokkurt vit er í í þessari stöðu að lögfesta eingöngu frv. um samstarfsnefndina, en gefa síðan aðilum málsins tíma og tóm til þess að vinna að sameiginlegri lausn þar sem menn komi auga á sameiginlega hagsmuni. Vegna þess að ég trúi því og ég veit að í þessu máli eru sameiginlegir hagsmunir þessara aðila en ekki andstæðir og ég tel að það sé skylda ríkisstjórnarinnar að stuðla að því að þeir geti komið fram.